18.10.26 - 14:03
Brynjar Ingi Erluson
Íslendingaliðið kastaði frá sér þriggja marka forystu - Ari lagði upp gegn toppliðinu

Ari lagði upp mark gegn toppliði Sirius

Mynd: Guðmundur Svansson

Lyngby kastaði frá sér þriggja marka forystu

Mynd: Lyngby

Ari lagði upp mark gegn toppliði Sirius

Mynd: Guðmundur Svansson
Íslendingalið Lyngby kastaði frá sér þriggja marka forystu í 3-3 jafntefli gegn Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í dag.
Ísak Snær Þorvaldsson var í byrjunarliði Lyngby og Davíð Helgi Aronsson kom snemma inn af bekknum eftir að Munashe Garananga þurfti að fara af velli vegna meiðsla.
Lyngby komst í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik og bætti við þriðja markinu þegar hálftími var eftir. Allt stefndi því í öruggan sigur, en það átti heldur betur eftir að breytast.
Daníel Freyr Kristjánsson kom inn af bekknum tveimur mínútum eftir þriðja markið, en þegar um tuttugu mínútur voru til leiksloka vaknaði Nordsjælland skyndilega til lífsins. Liðið skoraði þrjú mörk á aðeins sex mínútum og jafnaði metin. Á lokasekúndum leiksins fékk Nordsjælland vítaspyrnu til að fullkomna ótrúlega endurkomu, en klikkuðu úr henni og niðurstaðan 3-3 jafntefli.
Hrikalegur kafli hjá Lyngby sem kastaði þar með frá sér þriggja marka forystu og situr áfram á botni deildarinnar með átta stig.
Brynjar Ingi Bjarnason var ónotaður varamaður hjá SönderjyskE sem vann stórsigur á Silkeborg, 4-0. SönderjyskE er í næstneðsta sæti deildarinnar með átta stig.
Jakob Gunnar Sigurðsson kom inn af bekknum hjá Hilleröd sem tapaði 1-0 fyrir Hvidovre í dönsku B-deildinni. Hilleröd situr í næstneðsta sæti með níu stig.
Lúkas Petersson stóð í marki varaliðs Hoffenheim sem marði 2-1 sigur á Verl í þýsku C-deildinni. Hoffenheim er í fimmta sæti með 16 stig.
Ari Sigurpálsson lagði upp fyrra mark Elfsborg í 2-2 jafntefli gegn toppliði Sirius í sænsku úrvalsdeildinni. Hann og Júlíus Magnússon voru báðir í byrjunarliðinu hjá Elfsborg sem situr í fjórða sæti með 41 stig.
Sindri Kristinn Ólafsson var svo í marki Vasalund sem steinlá 4-0 fyrir Eskilstuna í norðurhluta sænsku C-deildarinnar. Vasalund er í 13. sæti með 28 stig þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir.