Fotbolti.net
18.10.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson

Jakirovic ósáttur: Munum horfa á þennan leik aftur og aftur

Jakirovic ósáttur: Munum horfa á þennan leik aftur og aftur
Canon

Mynd: EPA

Sergej Jakirovic var allt annað en sáttur með spilamennsku sinna manna eftir tap nýliða Hull City gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Lokatölur urðu 1-0 en Hull ógnaði marki andstæðinga sinna lítið í leiknum. Fulham verðskuldaði sigurinn og var Jakirovic mjög vonsvikinn.

„Þetta er versta frammistaða sem ég hef séð síðan ég tók við. Þeir voru miklu, miklu betri en við og eiga hrós skilið fyrir frábæra frammistöðu. Við vorum ömurlegir," sagði Jakirovic.

„Þetta var eins og að horfa á menn spila gegn strákum, þeir borðuðu okkur lifandi. Nú verðum við allir að líta í spegilinn og gera betur í næsta leik. Við munum horfa saman á þennan leik aftur og aftur til að sýna leikmönnum hvað þeir eiga ekki að gera."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.