18.10.26 - 12:47
Brynjar Ingi Erluson
Kulusevski að snúa aftur eftir eins og hálfs árs fjarveru

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sænski vængmaðurinn Dejan Kulusevski verður í leikmannahópi Tottenham gegn Coventry City í 7. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á morgun.
Kulusevski hefur verið frá keppni síðan í maí á síðasta ári þegar hann meiddist á hné eftir aðeins nítján mínútna leik gegn Crystal Palace.
Hann gekkst í kjölfarið undir aðgerð og upphaflega var gert ráð fyrir að hann yrði frá í nokkra mánuði. Endurhæfingin gekk hins vegar ekki sem skyldi og eftir ítrekuð bakslög fór svo að hann missti af öllu síðasta tímabili.
Svíinn hefur lagt hart að sér við að komast aftur á völlinn og nú sér loksins fyrir endann á þessari löngu fjarveru. Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, hefur staðfest að Kulusevski verði í hópnum gegn Coventry á morgun.
„Já, hann verður á bekknum. Læknateymið hefur gefið grænt ljós á það.“
„Þetta eru líklega bestu fréttirnar sem við höfum fengið síðan eftir leikinn gegn Everton. Hann hefur gengið í gegnum alltof mikið og það færðist risastórt bros yfir andlitið á honum þegar ég sagði honum að hann yrði í hópnum,“ sagði De Zerbi.