Fotbolti.net
18.10.26 - 11:47
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool hefur engar áhyggjur af stöðu Ngumoha

Liverpool hefur engar áhyggjur af stöðu Ngumoha
Canon

Mynd: EPA

Liverpool hefur engar áhyggjur af samningsstöðu enska vængmannsins Rio Ngumoha, en frá þessu greinir James Pearce hjá Athletic.
Ngumoha er 18 ára gamall og talinn einn efnilegasti leikmaður Englands.

Hann hefur fengið sífellt fleiri tækifæri með aðalliði Liverpool og sýnt góða takta, en samkeppnin um sæti í liðinu hefur harðnað með komu Bradley Barcola og Victor Munoz.

Englendingurinn er samningsbundinn Liverpool út næsta tímabil en samkvæmt Pearce hefur félagið engar áhyggjur af stöðunni.

Viðræður um nýjan samning eru þegar hafnar, en Pearce segir mikilvægt að ganga frá samkomulagi sem fyrst enda megi Liverpool vart við því að missa þennan efnilega leikmann.

Ngumoha hefur komið við sögu í átta leikjum með Liverpool á tímabilinu og verið í byrjunarliðinu í fjórum þeirra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.