Fotbolti.net
18.10.26 - 13:53
Brynjar Ingi Erluson
Franski boltinn

„Margir kalla þetta bændadeild og gera grín að henni, en leikirnir eru aldrei auðveldir“

„Margir kalla þetta bændadeild og gera grín að henni, en leikirnir eru aldrei auðveldir“
Canon

Mynd: EPA

Ilya Zabarnyi, varnarmaður Paris Saint-Germain, er ósammála þeim sem kalla frönsku deildina „bændadeild“ og segir að hún sé mun erfiðari en margir halda.
Franska deildin hefur um árabil verið kölluð „bændadeild“, en með því er verið að gera lítið úr gæðum deildarinnar og gefa í skyn að Paris Saint-Germain sé svo miklu sterkara en önnur lið að félagið eigi að vinna flesta leiki án teljandi erfiðleika.

Luis Enrique, þjálfari PSG, hefur enda reglulega hvílt lykilmenn í deildinni til að hafa þá í sem bestu formi fyrir leiki í Meistaradeildinni. Zabarnyi segir hins vegar að franska deildin sé mun erfiðari en margir vilja halda fram.

„Það getur stundum verið erfitt að snúa aftur í frönsku deildina eftir leiki í Meistaradeildinni, en í dag sá ég lið sem var staðráðið í að vinna.“

„Það er aldrei auðvelt að spila í frönsku deildinni. Allir kalla hana bændadeild (e. farmers league) eða eitthvað álíka og gera grín að henni, en leikirnir hér eru aldrei auðveldir. Þetta var erfiður leikur og þeir voru góðir, en við vorum betri,“
sagði Zabarnyi.

PSG vann 3-1 sigur á Strasbourg í gær og situr á toppi deildarinnar með 14 stig eftir sjö umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.