18.10.26 - 10:25
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Skoraði sjálfsmark frá miðju og liðið á barmi falls

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er ekki á hverjum degi sem leikmenn skora frá miðju og enn sjaldnar sem boltinn endar í þeirra eigin marki.
Ótrúlegt atvik átti sér stað í fallbaráttunni í argentínsku C-deildinni þegar UAI Urquiza mætti Liniers í gríðarlega mikilvægum leik fyrir Urquiza, sem þurfti nauðsynlega á stigunum þremur að halda.
Þegar um 28 mínútur voru liðnar af leiknum barst boltinn að miðjunni þar sem Tomas Asprea, sóknarsinnaður leikmaður Urquiza, ætlaði að hreinsa frá. Hann smellhitti hins vegar boltann í átt að eigin marki með þeim afleiðingum að hann flaug í háum boga yfir markvörðinn og alla leið í netið.
Stórfurðulegt sjálfsmark sem reyndist Urquiza dýrkeypt, en liðinu tókst að jafna metin áður en yfir lauk og varð því að sætta sig við eitt stig í stað þeirra þriggja sem það þurfti svo sárlega á að halda.
Urquiza situr nú í næstneðsta sæti deildarinnar með 39 stig, þremur stigum frá öruggu sæti þegar aðeins tvær umferðir eru eftir.

La UAI Urquiza esta descendiendo a la C y su numero "10" se hace este gol en contra. Si, gol en contra desde mitad de cancha. Nunca antes visto https://t.co/cAhCphQvb9
— Ascenso Mi Locura (@AscensoMiLocura) October 17, 2026