18.10.26 - 10:37
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu fyrrum leikmann Man Utd fá stórfurðulegt rautt spjald

Andreas Pereira í leik með Man Utd fyrir nokkrum árum

Mynd: EPA

Andreas Pereira, fyrrum leikmaður Manchester United, fékk stórfurðulegt rautt spjald í viðureign Atletico Mineiro og Palmeiras í brasilísku úrvalsdeildinni í gær.
Pereira, sem lék með Manchester United frá 2014 til 2022, gekk til liðs við Palmeiras frá Fulham á síðasta ári.
Brasilíumaðurinn hafði þegar fengið gult spjald gegn Athletico þegar heldur betur undarlegt atvik átti sér stað undir lok fyrri hálfleiksins.
Athletico var í sókn þegar annar bolti kom inn á völlinn og Pereira gat ekki stillt sig um að sparka í hann. Hann sendi boltann í átt að leikmanni andstæðinganna sem var með leikboltann og greip dómarinn því til spjaldanna.
Pereira fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir að trufla leikinn með þessum hætti. Ótrúlega heimskuleg ákvörðun hjá Brasilíumanninum sem skildi sína menn eftir einum færri.
Sem betur fer fyrir Pereira kom þetta ekki að sök því Palmeiras vann leikinn 2-0 og komst með sigrinum á topp deildarinnar.
Þetta stórfurðulega rauða spjald má sjá hér fyrir neðan.

que expulsão INACREDITÁVEL.
— Central do Braga (@CentralDoBrega) October 17, 2026
Andreas Pereira já tinha cartão amarelo e chutou a bola que invadiu o campo na bola do jogo
infringiu a regra, levou o segundo amarelo e foi EXPULSO.
MEU DEUS.
???? Prime Video https://t.co/tIZLlmhXR7