Fotbolti.net
18.10.26 - 12:25
Brynjar Ingi Erluson

Stefán Ingi skoraði en það dugði ekki - Sjötta tap Loga í röð

Stefán Ingi skoraði fjórða deildarmark sitt

Stefán Ingi skoraði fjórða deildarmark sitt

Canon

Mynd: EPA

Stefán Ingi Sigurðarson skoraði fyrir Go Ahead Eagles í 4-1 tapi liðsins gegn PEC Zwolle í hollensku úrvalsdeildinni í dag.
Blikinn skoraði sitt fjórða deildarmark á tímabilinu þegar hann kom Eagles yfir á 22. mínútu.

Eagles leiddi í hálfleik en í þeim síðari sneru heimamenn í Zwolle taflinu við með fjórum mörkum og tryggðu sér 4-1 sigur.

Alfons Sampsted var einnig í byrjunarliði Eagles sem situr í níunda sæti deildarinnar með 11 stig eftir níu umferðir.

Í Tyrklandi hafði Andri Fannar Baldursson betur gegn Loga Tómassyni þegar Kasimpasa vann sannfærandi 4-1 sigur á Samsunspor.

Andri byrjaði á miðjunni hjá Kasimpasa en Logi í vinstri bakverðinum hjá Samsunspor.

Það gengur hins vegar ekkert hjá Loga og félögum sem hafa nú tapað sex leikjum í röð og sitja í næstneðsta sæti deildarinnar með aðeins fjögur stig. Kasimpasa er aftur á móti í sjöunda sæti með 13 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.