Fotbolti.net
18.10.26 - 09:56
Brynjar Ingi Erluson

Sveindís Jane skoraði í ótrúlegri endurkomu

Sveindís Jane hóf endurkomu Angel City

Sveindís Jane hóf endurkomu Angel City

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Kvennaboltinn
Sveindís Jane Jónsdóttir var á skotskónum hjá Angel City þegar liðið vann 3-2 sigur á Denver Summit í NWSL-deildinni í Bandaríkjunum í nótt.
Angel City lenti tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik þrátt fyrir að hafa skapað sér ágæt færi, en eftir hálftíma leik kviknaði loksins á liðinu.

Sveindís Jane hóf endurkomuna þegar hún skoraði af öryggi hægra megin úr teignum, en þetta var níunda mark hennar í deildinni á tímabilinu.

Angel City jafnaði metin á 39. mínútu og rétt fyrir lok fyrri hálfleiks fullkomnuðu gestirnir ótrúlega endurkomu með þriðja markinu.

Magnaður viðsnúningur hjá Angel City, sem er í fimmta sæti deildarinnar með 46 stig þegar aðeins tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.