Fotbolti.net
18.10.26 - 09:48
Brynjar Ingi Erluson

Tvö frábær mörk hjá Messi í nótt

Messi lék sér að varnarmönnum Atlanta

Messi lék sér að varnarmönnum Atlanta

Canon

Mynd: EPA

Lionel Messi virðist líka staðráðinn í að rjúfa þúsund marka múrinn áður en ferlinum lýkur, en Argentínumaðurinn skoraði tvennu í 3-1 sigri Inter Miami á Atlanta United í nótt.
Argentínumaðurinn skoraði tvö mörk á aðeins fjórum mínútum í síðari hálfleik, það fyrra á 56. mínútu og það síðara á þeirri 60. Hann fór illa með vörn Atlanta í báðum mörkunum.

Hann er nú kominn með 936 mörk á ferlinum og þúsund marka múrinn því farinn að færast nær. Messi er aðeins 44 mörkum á eftir Cristiano Ronaldo, sem er enn fremstur í kapphlaupinu um að verða fyrstur til að ná þúsund mörkum.

Luis Suarez lagði upp tvö mörk í sigrinum, en Miami er í öðru sæti Austurdeildarinnar með 55 stig eftir 30 umferðir og á aðeins fjóra leiki eftir af deildarkeppninni.

Dagur Dan Þórhallsson kom inn af bekknum hjá San Diego FC sem gerði 2-2 jafntefli við Los Angeles Galaxy. San Diego situr í tólfta sæti Vesturdeildarinnar með 34 stig.





Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.