Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 19. janúar 2021 10:30
Brynjar Ingi Erluson
Saka og Smith Rowe í sögubækurnar eftir sigurinn
Bukayo Saka og Emile Smith-Rowe ná vel saman
Bukayo Saka og Emile Smith-Rowe ná vel saman
Mynd: Getty Images
Bukayo Saka og Emil Smith Rowe, leikmenn Arsenal, skráðu sig í sögubækur ensku úrvalsdeildarinnar í 3-0 sigrinum á Newcastle United í gær.

Saka og Smith Rowe hafa komið með neista inn í sóknarleik Arsenal á þessu tímabili og hjálpað liðinu að skora mörk.

Saka hefur komið að sjö mörkum Arsenal á þessu tímabili en hann hefur skorað fjögur og lagt upp þrjú á meðan Smith Rowe hefur skorað tvö og lagt upp fimm mörk.

Smith Rowe lagði upp mark fyrir Saka í gær og skráðu þeir sig um leið í sögubækurnar.

Þetta var í þriðja sinn á tímabilinu sem Smith Rowe leggur upp mark fyrir Saka. Það er í fyrsta sinn sem tveir Englendingar sem hafa ekki náð 21 árs aldri tekst að gera slíkt.

Smith Rowe hefur byrjað fimm leiki í deildinni með Arsenal og á þeim tímaramma hefur aðeins Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, skapað fleiri færi.
Athugasemdir
banner
banner