Tveir leikir fóru fram í ensku championship deildinni í kvöld.
Jökull Andrésson var kallaður úr láni frá Morecambe til Reading á dögunum. Reading átti leik gegn Luton í kvöld en liðið tapaði með tveimur mörkum gegn engu. Jökull var ekki í leikmannahópi Reading.
Í hinum leik kvöldsins áttust við Hull og Blackburn.
Fyrir leikinn var Hull í 20. sæti deildarinnar en Blackburn í þriðja sæti.
Hull komst yfir strax á 8. mínútu með marki frá George Honeyman eftir stoðsendingu Ryan Longman. Tom Eaves bætti öðru marki við fyrir Hull eftir tæplega 70. mínútna leik og aftur var Longmann með stoðsendingu.
Hull fór upp í 19. sætið en Blackburn áfram í 3. sæti fimm stigum frá toppnum.
Reading 0 - 2 Luton
1-0 Thomas Holmes ('33 , sjálfsmark)
1-1 Allan Campbell ('57 )
Hull City 2 - 0 Blackburn
1-0 George Honeyman ('8 )
2-0 Tom Eaves ('67 )
Athugasemdir