Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. febrúar 2021 20:57
Victor Pálsson
Staðfest að Fabinho og Milner spili ekki á morgun
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur staðfest að þeir Fabinho og James Milner spili ekki gegn Everton á morgun.

Liverpool spilar við Everton í grannaslag í ensku úrvalsdeildinni en flautað er til leiks klukkan 17:30 á Anfield.

Það eru ekki góðar fréttir fyrir Liverpool sem er í sjötta sæti deildarinnar og hefur tapað þremur deildarleikjum í röð.

Báðir leikmennirnir eru enn að glíma við meiðsli og eru á góðum batavegi. Þeir verða þó ekki klárir fyrir morgundaginn.

„Fab mætti ekki á æfingu. Það er ekkert nýtt að frétta af honum eða öðrum. Þeir munu komast þangað," sagði Klopp.

„Fab kemst nær, Milner kemst nær og Diogo Jota kemst nær en ekki nógu nálægt fyrir helgina."
Athugasemdir
banner
banner
banner