Alfreð: Innkoma Viðars tengist mér ekkert
Auglýsing

Alfreð hlýðir líkamanum og hann segir: Haltu áfram!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alfreð Finnbogason, sóknarmaður íslenska landsliðsins, segist vera klár í slaginn fyrir leikinn gegn Andorra sem fram fer á föstudag. Með leiknum hefst undankeppnin fyrir EM 2020.
Alfreð ræddi við Fótbolta.net á hóteli íslenska landsliðsins í dag.
„Staðan á mér er nokkuð góð. Ég spilaði 60 mínútur um síðustu helgi og það var gott fyrsta skref. Mér líður vel. Ég var með á fullu á æfingu í dag og líkaminn segir bara 'haltu áfram' og ég hlýði þeim fyrirmælum," sagði Alfreð léttur.

Viðar Örn Kjartansson var kallaður upp í landsliðið í dag en Alfreð segir að það tengist ekkert stöðunni á sér.
„Alls ekki. Það hefur ekkert slíkt komið frá mér. Mér líður mjög vel. Í draumaheimi væri ég búinn að spila 90 mínútur í síðustu leikjum en svona er staðan. Um tíma var ekki ljóst hvort ég yrði klár í þessa landsleiki en það hafðist að vera klár í tæka tíð."
Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar talar hann meðal annars um gervigrasið, gang mála hjá Augsburg og félagaskipti Arons Einars Gunnarssonar