Fotbolti.net
19.05.19 - 11:40
Ívan Guðjón Baldursson

Ólíklegt að Lichtsteiner verði áfram hjá Arsenal

Ólíklegt að Lichtsteiner verði áfram hjá Arsenal
Canon

Mynd: Getty Images

Hinn 35 ára gamli Stephan Lichtsteiner mun yfirgefa Arsenal í sumar. Hann sagðist þurfa loforð um aukinn spiltíma til að vera áfram en hefur ekki fengið það.
Lichtsteiner kom á frjálsri sölu frá Ítalíumeisturum Juventus síðasta sumar og kom við sögu í 23 leikjum á tímabilinu.

Hann vill aukinn spiltíma til að komast í svissneska landsliðshópinn fyrir EM 2020.

„Mér finnst ólíklegt að ég verði áfram hjá félaginu. Eins og staðan er núna þá veit ég ekki neitt, við verðum að sjá til hvað gerist. Það eina sem skiptir máli þessa stundina er úrslitaleikur Evrópudeildarinnar," sagði Lichtsteiner.

„Ég þrái að vinna þessa keppni, félagið á það skilið. Félagið á skilið að vinna mikilvægan titil og að komast í riðlakeppni Meistaradeildarinnar."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.