Fotbolti.net
19.06.21 - 22:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Manchester United hræðist að missa Pogba frítt

Manchester United hræðist að missa Pogba frítt
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hræðist að samningur Paul Pogba muni renna út og hann fari frítt frá félaginu á næsta ári.
United eru að reyna allt til að sannfæra Pogba um að skrifa undir nýjan samning fyrir leiktíðina.

Það gengur ekkert að sannfæra Pogba og umboðsmann hans Mino Raiola, svo United mun frekar reyna selja leikmanninn í sumar en að missa hann frítt á næsta ári.

Það gæti hjálpað United að fjármagna kaup í sumar en liðið hefur sterklega verið orðað við Jadon Sancho og talið er að síðasta tilboð í leikmanninn hljóði upp á 81.5 milljónir punda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.