Fotbolti.net
19.06.26 - 21:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Como og Real Madrid funda í næstu viku

Como og Real Madrid funda í næstu viku
Canon

Mynd: EPA

Framtíð Nico Paz, leikmanns Como á Ítalíu, er í mikilli óvissu en Real Madrid hefur forkaupsrétt á honum.

Paz er 21 árs gamall Argentínumaður sem gekk til liðs við Como frá Real Madrid árið 2024. Hann hefur slegið í gegn hjá Como en hann kom að 21 marki í 40 leikjum í öllum keppnum á síðasta tímabili. Como tryggði sér sæti í Meistaradeildinni undir stjórn Cesc Fabregas.
Fabrizio Romano greinir frá því að Como og Real Madrid ætli að funda um Paz í næstu viku.

Real Madrid getur keypt hann fyrir 10 milljónir evra en spænska félagið vill endurskipuleggja samninginn.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.