HM: Bandaríkin tryggðu sér sæti í 32-liða úrslitum

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Bandaríkin 2 - 0 Ástralía
1-0 Cameron Burgess ('11 , sjálfsmark)
2-0 Alexander Freeman ('43 )
1-0 Cameron Burgess ('11 , sjálfsmark)
2-0 Alexander Freeman ('43 )
Bandaríkin eru komin áfram í 32-liða úrslit á HM eftir sigur á Ástralíu í 2. umferð riðlakeppninnar í kvöld.
Bandaríkin voru án Christian Pulisic sem er að berjast við meiðsli en það hafði lítil áhrif á liðið. Bandaríkin unnu sannfærandi 4-1 sigur á Paragvæ í fyrstu umferð á meðan Ástralía vann óvæntan 2-0 sigur á Tyrkjum.
Ástralía sýndi frábæran varnarleik gegn Tyrklandi en liðið fékk á sig mark snemma leiks í kvöld. Folarin Balogun, sem skoraði tvennu gegn Paragvæ, komst inn á teig og átti sendingu og boltinn fór af Cameron Burgess, varnarmanni Ástralíu, og í netið.
Bandaríkjamenn voru með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik og annað markið kom undir lokin þegar Serginio Dest átti skot sem fór af varnarmanni og boltinn barst til Alex Freeman sem skoraði.
Balogun var í rangstöðu en hafði ekki áhrif á leikinn og markið fékk að standa.
Það var þreföld skipting hjá Áströlum í hálfleik. Nestory Irankunda og Connor Metcalfe, sem skoruðu mörkin gegn Tyrkjum, komu m.a. inn á.
Ástralía sýndi mun betri takta í seinni hálfleik. Bandaríkjamenn stóðu vaktina hins vegar mjög vel og unnu að lokum 2-0 og eru búnir að tryggja sér sæti í 32-liða úrslitum. Tyrkland og Paragvæ mætast í sama riðli klukkan þrjú í nótt.
Það urðu smá töf á leiknum í uppbótatíma þar sem Felix Zwayer, dómari leiksins, fékk krampa. Hann kláraði hins vegar síðustu mínúturnar.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!