Fotbolti.net
19.06.26 - 21:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeildin: Valdimar með glæsilegt mark í sigri Njarðvíkinga

Valdimar Jóhannsson

Valdimar Jóhannsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Njarðvík 1 - 0 Leiknir R.
1-0 Valdimar Jóhannsson ('34 )
Lestu um leikinn
Njarðvík vann sterkan sigur á Leikni í Njarðvík í kvöld. Njarðvíkingar voru sterkari í byrjun leiks og brutu ísinn eftir rúmlega hálftíma leik.

Valdimar Jóhannsson átti frábært skot fyrir utan teiginn og boltinn hafnaði í fjærhorninu.

Sigurjón Már Markússon var nálægt því að bæta við öðru markin snemma í seinni hálfleik en átti skalla í slá. Njarðvíkingar voru með öll völd á vellinum, Oumar Diouck var nálægt því að skora en átti skot rétt framhjá.

Njarðvíkingar voru líklegri til að bæta við en Leiknismenn að jafna metin en staðan hélst óbreytt og Njarðvíkingar fóru með 1-0 sigur af hólmi.

Njarðvík er í 7. sæti með 14 stig eftir tíu umferðir en Leiknir er í 5. sæti með 15 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding12+1625
2Fylkir12+624
3Þróttur R.12+1223
4Vestri13+221
5Leiknir R.12+219
6HK12+119
7Njarðvík12+317
8Grótta11-416
9ÍR12-711
10Grindavík11-310
11Völsungur12-118
12Ægir13-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.