Fotbolti.net
19.06.26 - 20:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sjáðu markið: Bandaríkin nálgast 32-liða úrslitin

Sjáðu markið: Bandaríkin nálgast 32-liða úrslitin
Canon

Mynd: EPA

Bandaríkin eru í góðum málum gegn Ástralíu en staðan er 2-0 í hálfleik.

Bandaríkin hafa stjórnað ferðinni frá A-Ö en liðið komst yfir snemma leiks þegar Cameron Burgess varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Liðið náði að tvöfalda forystuna þegar skammt var til loka fyrri hálfleiksins.
Sjáðu markið: Draumabyrjun fyrir Bandaríkjamenn
TENGT EFNI

Sjáðu markið: Draumabyrjun fyrir Bandaríkjamenn

Serginio Dest átti skot sem fór af varnarmanni og Alex Freeman náði boltanum og skoraði. Aðstoðardómarinn lyfti upp flagginu þar sem Folarin Balogun var í rangstöðu en Freeman var það ekki og markið fékk að standa.

Bandaríkin tryggja sér sæti í 32-liða úrslitum með sigri.

Sjáðu markið hér
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.