Fotbolti.net
19.07.26 - 22:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson

HM: Spánn heimsmeistari í annað sinn eftir sigur í framlengingu

HM: Spánn heimsmeistari í annað sinn eftir sigur í framlengingu
Canon

Mynd: EPA

Spánn 1 - 0 Argentína
1-0 Ferran Torres ('106 )
Rautt spjald: Enzo Fernandez, Argentina ('90)
Spánn varð heimsmeistari í annað sinn eftir sigur á Argentínu eftir framlengdan leik. Lamine Yamal komst í færi snemma leiks en skotið beint á Emiliano Martínez.

Spánverjar voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik og Argentínumenn létu finna fyrir sér. Spánverjar vildu sjá Alexis Mac Allister fá spjald fyrir brot á Dani Olmo eftir stundafjórðung en Slavko Vincic, dómari leiksins, hélt spjöldunum í vasanum.

Lisandro Martínez fékk fyrsta gula spjald leiksins undir lok fyrri hálfleiks en hann varð fyrir því óláni að meiðast stuttu síðar og þurfti að fara af velli.

Spánverjar héldu áfram að sækja í seinni hálfleik. Olmo var nálægt því að brjóta ísinn eftir klukkutíma leik en Martínez varði í horn.

Enzo Fernandez fékk gult spjald fyrir kjaftbrúk þegar tæplega tíu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma. Hann fékk síðan sitt annað gula spjald og þar með rautt í uppbótatíma fyrir brot á Pau Cubarsi.

Spánverjar brutu ísinn strax í upphafi í seinni hálfleik framlengingarinnar. Nico Williams skallaði boltann fyrir fætur Ferran Torres sem skoraði með föstu skoti af stuttu færi.

Argentínumenn settu pressu á Spánverja í lokin. Giuliano Simeone fékk boltann inn á teignum eftir hornspyrnu en skaut yfir þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.

Nær komust Argentínumenn ekki og Spánverjar eru heimsmeistarar 2026.
HM: Spánn heimsmeistari í annað sinn eftir sigur í framlengingu
Canon

Mynd: EPA

HM: Spánn heimsmeistari í annað sinn eftir sigur í framlengingu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.