23.08.26 - 21:26
Brynjar Ingi Erluson
„Höfum talað um það í þrjú ár að Liverpool þurfi varnarsinnaðan miðjumann“

Liverpool þarf að styrkja hópinn

Mynd: EPA

Ryan Gravenberch hefur sinnt hlutverkinu, en er þó í eðli sínu mun sóknarsinnaðri

Mynd: EPA

Liverpool þarf að styrkja hópinn

Mynd: EPA
Liverpool þarf nauðsynlega á varnarsinnuðum varnarmanni að halda áður en glugginn lokar. Þetta sagði Daniel Sturridge, fyrrum leikmaður félagsins, á Sky Sports.

TENGT EFNI
England: Hádramatík þegar Szoboszlai bjargaði stigi fyrir Liverpool
Liverpool gerði 2-2 jafntefli við Newcastle United í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á St. James' Park í dag.
Eftir leikinn sagði Daniel Sturridge að það væri augljóst að Liverpool þyrfti á varnarsinnuðum miðjumanni að halda. Að hans mati hefur þörfin raunar verið brýn síðustu þrjú ár.
Samkvæmt enskum fjölmiðlum hefur Liverpool áhuga á Adam Wharton hjá Crystal Palace, en það þykir þó afar ólíklegt að Palace samþykki að selja hann svo skömmu fyrir lok félagaskiptagluggans.
Sturridge telur alla vega að Liverpool verði að styrkja þessa stöðu sem fyrst.
„Ég tel að liðið þurfi varnarsinnaðan miðjumann. Við höfum talað um þetta síðustu þrjú ár.“
„Gravenberch kom inn í liðið og spilaði stöðugt vel. Þegar Liverpool vann ensku úrvalsdeildina breytti það aðeins umræðunni, en ef maður skoðar miðjuna eru þetta allt frekar sóknarsinnaðir leikmenn.“
„Tökum Brentford sem dæmi. Félagið fékk Mamadou Sangare og ef maður skoðar tölfræðina er hann þriðji í boltaendurheimtum, þriðji í tæklingum og þriðji í að vinna boltann til baka. Hann kostaði 39 milljónir punda og maður hugsar með sér að það sé ekki há upphæð fyrir félag á borð við Liverpool.“
„Ég er ekki endilega að segja að Liverpool hefði átt að kaupa hann, en tölfræðin er sláandi. Liverpool er ekki með leikmann af þessari gerð.“
„Ég er mjög hrifinn af Trey Nyoni. Hann er frábær leikmaður en meira spilandi sexa eða átta. Hann er ekki þessi slátrari á miðjunni sem vekur ótta hjá mótherjunum, eins og Sangare getur gert eða N'Golo Kante gerði árum saman,“ sagði Sturridge.