Heimir Hallgrímsson fékk góðan liðsstyrk í dag þegar Spánverjinn Marc Muniesa gekk í raðir Al Arabi frá spænska félaginu Girona.
Muniesa er 27 ára gamall og var hann hluti af liði Barcelona á árunum 2009-2013 en margir telja það Barcelona lið eitt af betri fótboltaliðum sögunnar.
Muniesa spilaði þó aðallega með varaliði Barcelona á þeim tíma en lék þó tvo leiki fyrir aðallið félagsins ásamt því að vera nokkrum sinnum í leikmannahópnum.
Hann gekk síðan í raðir Stoke árið 2013 þar sem að hann lék 57 leiki áður en hann færði sig til Girona.
Muniesa stóðst læknisskoðun í morgun og verður klár í fyrsta leik gegn Al Ahli á föstudag en þá hefst úrvalsdeildin í Katar.
وقعت إدارة النادي العربي مع المحترف الإسباني مارك مونييسا لاعب فريق جيرونا الإسباني وذلك لمدة موسمين لدعم الفريق الأول لكرة القدم بالنادي .
— Al-Arabi Sports Club (@alarabi_club) August 19, 2019
وقام اللاعب بالتوقيع على العقد مساء اليوم بعد ان اجتاز الكشف الطبي الذي اجراه صباح اليوم في مستشفي سبيتار . pic.twitter.com/rZJp1JuIMk
Athugasemdir