Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 19. ágúst 2019 15:30
Magnús Már Einarsson
Sokratis: Kannski auðveldara gegn Liverpool
Mynd: Getty Images
Sokratis Papastathopoulos, varnarmaður Arsenal, segir að það verði mögulega auðveldara að kljást við sóknarmenn Liverpool um næstu helgi heldur en það var að mæta líkamlega sterku liði Burnley í fyrradag.

„Þetta er öðruvísi leikur. Kannski verður hann auðveldari því þú þarft ekki að berjast jafnmikið. Þeir spila líka fótbolta," sagði Sokratis um Liverpool leikinn.

Sokratis og félagar fara á Anfield síðdegis á laugardag en á síðasta tímabili tapaði liðið þar 5-1.

„Ef þeir eiga góðan dag og þú átt slæman dag þá er þetta erfitt. Við vitum að þetta verður erfitt og við berum mikla virðingu fyrir Liverpool. Ég held að það sé best að spila okkar leik og sjá hvað gerist."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner