Viktor Jóns: Þetta verður erfið ákvörðun
Auglýsing

Viktor fagnar með liðsfélögum sínum.

Mynd: Fótbolti.net

Viktor fagnar með liðsfélögum sínum.

Mynd: Fótbolti.net
„Þetta er ein besta tilfinning sem ég hef upplifað held ég,\" segir sóknarmaðurinn Viktor Jónsson sem skoraði eina mark Þróttar í 1-0 sigri gegn Selfossi í dag. Þróttarar eru komnir upp í Pepsi-deildina eftir úrslit dagsins.
„Þetta er ólýsinganleg tilfinning. Liðið hefur spilað frábærlega og sumarið hefur verið frábært. Ég get ekki lýst því hvað þetta er gaman.\"
Viktor kom á lánssamningi frá Víkingi Reykjavík og raðaði inn mörkum í 1. deildinni í sumar. En hvar spilar hann næsta sumar?
„Það er góð spurning. Það á eftir að skoða þau mál. Ég fer aftur í Víkina, samningurinn minn er þannig. En svo veit maður aldrei hvað opnast,\" segir Viktor sem viðurkennir að það sé spennandi tilhugsun að vera áfram hjá Þrótti.
„Auðvitað gerir það. Þetta hefur verið frábært sumar. Víkingur er uppeldisklúbburinn og er í hjartanu. Þetta verður erfið ákvörðun.\"
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.