Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari kvenna tilkynnti í dag leikmannahóp sinn sem mætir Frökkum og Slóvaníu í byrjun október.
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru ekki í hópnum að þessu sinni og hann útskýrði þá ákvörðun á fréttamannafundi.
„Í takt við það sem við höfum verið að gera munu þær spila með U19 liðinu hér heima í undankeppni og fá þar mikilvæga landsleiki," sagði Jón Þór.
„Þær munu styrja það lið og það er okkur mikilvægt að U19 ára liðið komist uppúr þeim riðli og komast í milliriðil með þann draum að komast í lokakeppni sem myndi gefa okkur gríðarlega reynslu upp á framhaldið og nýtast A-landsliðinu seinna meir."
„Við gerðum það sama með stelpurnar í vor úti í Hollandi og fylgjum þeim takti. Rakel Hönnudóttir og Sandra María Jessen koma inn í staðinn."
Athugasemdir