Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 19. september 2020 05:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
England í dag - Man Utd, Leeds, Everton og Lundúnarslagur
Mynd: Getty Images
Fjórir leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni þennan laugardaginn. Allir leikirnir eru í beinni útsendingu á Síminn Sport.

Everton fær WBA í heimsókn í hádegisleiknum og spurning hvort Gylfi Þór Sigurðsson verði í byrjunarliði Everton í leiknum. Gylfi lék mjög vel í deildabikarnum í miðri viku en var ekki í byrjunarliðinu gegn Spurs um síðustu helgi.

Leeds tekur á móti Fulham í nýliðaslag og þá hefur Manchester United þátttöku sína þetta keppnistímabilið, liðið lék ekki í fyrstu umferð deildarinnar.

Lokaleikur dagsins er svo viðureign Arsenal og West Ham, Lundúnarslagur, sem hefst klukkan 19:00.

ENGLAND: Premier League
11:30 Everton - West Brom
14:00 Leeds - Fulham
16:30 Man Utd - Crystal Palace
19:00 Arsenal - West Ham
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner