Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greindi frá því í gær að Davide Zappacosta hefði yfirgefið London í gær og væri mættur til Ítalíu.
Þar myndi hægri bakvörðurinn skrifa undir eins árs lánssamning við Genoa. Einungis á eftir að klára læknisskoðun og aðra tæknilega þætti. Zappacosta er samningsbundinn Chelsea.
Þar myndi hægri bakvörðurinn skrifa undir eins árs lánssamning við Genoa. Einungis á eftir að klára læknisskoðun og aðra tæknilega þætti. Zappacosta er samningsbundinn Chelsea.
Þá var Paulo Fonseca, stjóri Roma, í viðtali í gær. Hann var spurður út í stöðuna á Chris Smalling en miðvörðurinn var að láni hjá Roma frá Manchester United á síðustu leiktíð.
„Við erum í viðræðum við Manchester United um að fá Smalling aftur. Ég er líka í sambandi við Chris sjálfan. Hann vill koma aftur til Rómar og við viljum fá hann. Ég vona að hann verði kominn hingað eftir nokkra daga."
Uppfært 09:55: Zappacosta er genginn í raðir Genoa á lánssamningi út þessa leiktíð.
Athugasemdir