Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 19. september 2022 21:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lewandowski: Styttri leið í Ballon d'Or hjá Barcelona
Mynd: EPA

Robert Lewandowski hefur byrjað ferilinn hjá Barcelona frábærlega. Hann er kominn með 11 mörk í 8 leikjum.


Margir töldu að hann hafi átt skilið að vinna Ballon D'or í fyrra en svo fór að Lionel Messi hafði betur.

Lewandowski segir að það sé auðveldara að vinna Ballon d'Or sem leikmaður Barcelona en leikmaður Bayern.

„Ég bjóst ekki við því að stuðningsmenn Barcelona myndu byrja að syngja fyrir mig svona fljótt. Það lætur mér líða eins og ég hafi verið hér lengi. Barcelona á flesta leikmenn sem hafa unnið Ballon d'Or. Ég held að leiðin sé styttri hjá Barcelona heldur en hjá Bayern," sagði Lewandowski.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner