Alli Jói eftir mikilvægan sigur: Þannig þrífast alvöru íþróttakonur

Aðalsteini Jóhanni Friðrikssyni, þjálfara Þórs/KA var gríðarlega létt eftir mikilvægan sigur Þórs/KA á Hlíðarenda.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aðalsteini Jóhanni Friðrikssyni, þjálfara Þórs/KA var gríðarlega létt eftir mikilvægan sigur Þórs/KA á Hlíðarenda.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór/KA lyfti sér af botninum í úrslitakeppni neðri hluta Bestu deildarinnar með gríðarlega mikilvægum 0-1 sigri gegn Val á Hlíðarenda í dag. Margrét Árnadóttir skoraði eina mark leiksins á 63. mínútu.
„Þetta er bara gríðarlegur léttir og mikil ánægja með úrslitin og heildarframmistöðu liðsins. Það var mikið undir í þessum leik og þetta var mikill liðssigur,“ sagði Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þórs/KA, eftir leik.
Markvörður Þórs/KA átti stórleik sem og aftasta varnalínan, þegar Valskonur sóttu að marki gestanna. Aðalsteinn vildi þó ekki gera sigurinn að verki eins leikmanns.
„Ally er búin að vera frábær hjá okkur í mörgum leikjum og varnarlínan hefur verið góð. En umfram allt, þegar þú heldur hreinu, þá er það liðsframmistaðan sem skilar sér.“
Liðin höfðu mæst skömmu áður fyrir norðan þar sem Valur hafði betur með marki á lokamínútunni. Aðalsteinn sagði Þór/KA hafa nálgast leikinn með svipuðum hætti núna.
„Það var súrt hvernig við töpuðum þeim leik og okkur fannst við eiga meira skilið út úr honum. Við settum þennan leik upp á svipaðan hátt. Þetta er í þriðja skipti sem liðin mætast í sumar og ég held að þetta hafi verið skemmtilegasti og opnasti leikurinn. Bæði lið áttu sína kafla en umfram allt var það vinnuframlag okkar sem skilaði þessu í dag.“
Þór/KA tekur á móti Fram í öðrum gríðarlega mikilvægum leik í næstu umferð. Aðalsteinn hefur fulla trú á því að liðið haldi sér frá fallsætunum.
„Ég sé þetta bara enda á jákvæðum nótum, það er ekki spurning. Spennan er gríðarleg og við eigum að njóta þess að spila leiki sem skipta öllu máli. Þannig þrífst alvöru íþróttafólk, alvöru íþróttakonur. Við reynum líka að hafa svolítið gaman af þessu.“
Aðalsteinn var einnig spurður út í umræðuna um mögulega fjölgun liða í Bestu deildinni. Hann telur öll fjögur liðin í neðri hlutanum þess verðug að leika áfram í deild þeirra bestu.
„Umræðan er á þá leið að það eigi að fjölga í deildinni og ég er mjög sammála því. Þessi fjögur lið sem eru að keppa hér í neðri hlutanum eru öll þess verðug að vera í efstu deild. En reglunum hefur ekki verið breytt og þetta er mótið núna.“
Hann telur þó að fjölgun upp í fjórtán lið eins og rætt hefur verið um karla meginn, væri of stórt skref í einu.
„Mér finnst það kannski heldur stórt stökk. Ég myndi byrja í tólf liðum. Það er alls konar sem þarf að skoða, laga og gera betur í kvennaknattspyrnu yfir höfuð.“
Aðalsteinn vildi þó ekki fara dýpra í þá umræðu meðan fallbaráttan stendur sem hæst.
„Akkúrat núna horfum við bara í næsta leik, reynum að fá sem mest út úr honum og koma okkur úr fallsætunum. Ég hef skoðanir á þessu og við getum kannski rætt þær betur þegar tímabilið er búið.“
