Fotbolti.net
19.09.26 - 17:20
Ívan Guðjón Baldursson

Arteta: Megum ekki leyfa þessu að gerast aftur

Arteta: Megum ekki leyfa þessu að gerast aftur
Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta er hundsvekktur eftir 3-0 tap Englandsmeistara Arsenal gegn Brighton í dag.
England: Meistararnir teknir í bakaríið í Brighton
TENGT EFNI

England: Meistararnir teknir í bakaríið í Brighton

Arsenal hafði byrjað tímabilið af miklum krafti og var með sjö sigra eftir sjö leiki fyrir tapið á Falmer Stadium.

„Brighton var betra liðið og átti skilið að sigra. Við klikkuðum á grunnatriðum fótboltans og verðskulduðum ekkert úr þessum leik. Við unnum ekki nægilega mörg einvígi eða seinni bolta og gerðum alltof mikið af mistökum," sagði Arteta.

„Við vissum að þeir myndu pressa okkur en brugðumst ekki við eins og við áttum að gera. Við verðum að læra af þessu en ég er vonsvikinn. Við fundum engin svör og það er bæði útaf því að við vorum ekki að spila okkar besta leik og útaf gæðum andstæðinganna, við megum ekki taka neitt af Brighton. Þeir spiluðu þennan leik frábærlega og við vorum varla samkeppnishæfir. Við gerðum alltof mikið af tæknilegum mistökum og gáfum boltann auðveldlega frá okkur.

„Við klúðruðum góðum færum sem við fengum og það gerði okkur erfitt fyrir, en ég verð að hrósa Brighton fyrir frammistöðuna. Við höfum verið stórkostlegir á upphafi tímabilsins og verðum að læra af þessu tapi.

„Þetta er mjög sársaukafullt en við verðum að taka þessu. Við megum ekki leyfa þessu að gerast aftur."


Nú tekur landsleikjahlé við og eru næstu leikir Arsenal í október á heimavelli, fyrst gegn Leeds og svo gegn Hákoni Arnari Haraldssyni og félögum í Lille.
Arteta: Megum ekki leyfa þessu að gerast aftur
Canon

Mynd: EPA

Arteta: Megum ekki leyfa þessu að gerast aftur
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.