Fotbolti.net
19.09.26 - 17:57
Ívan Guðjón Baldursson

Besta deild kvenna: Valur tapaði á heimavelli

Besta deild kvenna: Valur tapaði á heimavelli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Valur 0 - 1 Þór/KA
0-1 Margrét Árnadóttir ('63)
Lestu um leikinn: Valur 0 - 1 Þór/KA
Valur og Þór/KA áttust við í botnslag Bestu deildar kvenna í dag og var staðan markalaus eftir fyrri hálfleik þar sem bæði lið fengu tækifæri til að skora.

Akureyringar fengu bestu færin í fyrri hálfleik og var Emma Hawkins lífleg í liði heimakvenna. Í síðari hálfleik skaut Þór/KA í slá og gerði Emma sig hættulega en fyrsta markið leit dagsins ljós á 63. mínútu.

Margrét Árnadóttir skoraði það eftir atgang í vítateig Vals í kjölfar hornspyrnu. Boltinn datt fyrir hana og var Margrét rétt kona á réttum stað til að pota honum í netið.

Valskonur skiptu um gír eftir að hafa lent undir og sköpuðu mikið af færum en Alessandra Augur varði nokkrum sinnum meistaralega til að halda markinu hreinu.

Kraftur heimakvenna minnkaði á lokamínútunum og tókst Akureyringum að sigla gífurlega dýrmætum sigri í höfn.

Þór/KA klifrar úr fallsæti með þessum sigri og er með 22 stig eftir 19 umferðir, einu stigi fyrir ofan Víking R. sem er í fallsæti eftir dramatískt jafntefli við Fram í gær.

Valur vermir botnsæti deildarinnar eftir þetta tap, með 20 stig. Tveimur stigum frá Þór/KA sem situr í öruggu sæti þegar aðeins tvær umferðir eru eftir af deildartímabilinu.
Besta deild kvenna: Valur tapaði á heimavelli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Besta deild kvenna: Valur tapaði á heimavelli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.