19.09.26 - 18:27
Ívan Guðjón Baldursson
England: Markvörðurinn lagði upp sigurmarkið í Nottingham

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Nottingham Forest 0 - 1 Coventry
0-1 Jay Dasilva ('55 )
0-1 Jay Dasilva ('55 )
Ensku úrvalsdeildarnýliðarnir Coventry, sem leika undir stjórn Frank Lampard, sóttu sín fyrstu stig á tímabilinu þegar þeir heimsóttu Nottingham í dag.
Coventry var án stiga eftir fjórar fyrstu umferðirnar en staðan var markalaus í leikhlé gegn lærlingum Oliver Glasner í dag.
Forest var sterkari aðilinn en tókst ekki að skora framhjá Carl Rushworth sem átti mjög góðan leik á milli stanganna. Staðan var markalaus þegar Rushworth gerði sér lítið fyrir og lagði upp eina mark leiksins fyrir Jay Dasilva á 55. mínútu.
Rushworth gaf langan bolta upp vænginn, bakvið vængbakvörð Forest, og náði Dasilva magnaðri fyrstu snertingu á boltann til að smeygja sér framfyrir Daniel Munoz. Dasilva komst þannig einn í gegn og gerði líka vel að bíða eftir að Matz Sels settist niður áður en hann kláraði með marki.
Heimamenn reyndu að svara fyrir sig en lentu í erfiðleikum gegn skipulagðri varnarlínu og tókst ekki að setja boltann framhjá Rushworth. Lokatölur urðu því 0-1 fyrir Coventry, sem er með þrjú stig eftir fimm umferðir.
Nottingham Forest er með fimm stig.

TENGT EFNI