Fotbolti.net
19.09.26 - 18:14
Andri Stefánsson

Gylfi Sig: Ég var aldrei að fara að missa af þessum leik

Auglýsing
Gylfi eftir leik.

Gylfi eftir leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR tók á móti Víkingi í 2. umferð eftir skiptingu klukkan 14:00 í dag. Leikar enduðu með 2-1 útisigri Víkings sem tryggði þeim Íslandsmeistaratitilinn. Fótbolti.net ræddi við Gylfa Þór Sigurðsson, leikmann Víkings, eftir leik.
Lestu um leikinn: KR 1 - 2 Víkingur R.
Gylfi Sigurðsson var að vonum ánægður eftir að Víkingur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn.

„Geggjuð tilfinning. Við erum búnir að vera að vinna að þessu allt tímabilið, allan veturinn og allt árið, þannig að þetta er bara geggjað.“

Gylfi sagði leikinn hafa verið lokaðan enda mikið undir.

„Það var ekki mikið að gerast í fyrri hálfleik, ekki mikið af færum eða stöðum þar sem boltinn var kominn inn í boxið. Þetta er auðvitað leikur um bikar, þannig að þetta var ekki fínasti leikurinn að horfa á.“

Víkingar lentu undir en náðu að svara og snúa leiknum sér í vil.

„Það var góður tími til að skora. Mér fannst vera smá brot á Karli þegar hann var að hlaupa til baka, en við komum til baka, gáfumst ekkert upp og sigldum þessu heim.“

Gylfi hafði verið tæpur fyrir leikinn og ekki tekið þátt í síðasta leik Víkings. Spurður um það sagði hann:

„Ég var aldrei að fara að missa af þessum leik.“

Hann hrósaði stuðningsmönnum Víkings sérstaklega.

„Það er geggjað. Það er alltaf gaman að spila fyrir framan þá og extra gaman núna. Við fáum geðveikan stuðning hvert sem við förum. Þeir hafa verið frábærir allt tímabilið og líka allt tímabilið í fyrra. Þeir elta okkur út um allt og láta heyra í sér.“

Að lokum var Gylfi spurður út í komandi verkefni með íslenska landsliðinu.

„Það er bara æðislegt. Ég er mjög spenntur fyrir verkefninu. Fjórir leikir á stuttum tíma og mikið um ferðalög, þannig að ég er mjög spenntur.“

Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum hér fyrir ofan

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.24+5059
2KR24+2847
3Fram23+1245
4Breiðablik23+433
5ÍA23-630
6Keflavík23-828
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.