19.09.26 - 18:16
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjudeildin: Þróttur í Bestu deildina

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Þróttur R. 1 - 0 Fylkir
1-0 Aron Snær Ingason ('78)
1-0 Aron Snær Ingason ('78)

TENGT EFNI
Framkvæmdastjóri ÍTF: Alveg hægt að kalla þetta 100 milljóna króna leik
Þróttur R. er búið að tryggja sér sæti í Bestu deildinni á næsta ári eftir nauman sigur gegn Fylki í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar.
Liðin mættust á Laugardalsvelli og var staðan markalaus eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik.
Þróttur fékk besta færið í bragðdaufum fyrri hálfleik en Fylkismenn vildu vítaspyrnu sem þeir fengu ekki.
Í síðari hálfleik átti Aron Snær Ingason skot í stöng fyrir Þrótt og komst Örn Bragi Hinriksson í dauðafæri en Ólafur Kristófer Helgason varði meistaralega.
Þróttarar voru sterkari aðilinn og skoraði Aron Snær það sem reyndist eina mark leiksins á 78. mínútu eftir frábæran undirbúning. Tryggvi Snær Geirsson var kominn í frábæra stöðu í vítateig Fylkis eftir laglegt þríhryningsspil og var óeigingjarn þegar hann sendi boltann þvert fyrir markið í stað þess að skjóta sjálfur. Aron skoraði af stuttu færi og áttu Árbæingar engin svör.
Fylkismenn sköpuðu sér lítið sem ekkert á lokakaflanum og sigldu Þróttarar afar dýrmætum sigri í höfn. Lokatölur 1-0.

Einkunnir úr úrslitaleiknum: Aron skaut Þrótti í Bestu deildina