Fotbolti.net
19.09.26 - 23:40
Ívan Guðjón Baldursson

Siguðu lögreglunni á stuðningsmenn Millwall

Siguðu lögreglunni á stuðningsmenn Millwall
Canon

Mynd: Millwall FC

Fjandslagurinn heimsfrægi á milli West Ham United og Millwall fór fram í dag í Championship deildinni. Þetta var fyrsti fjandslagur liðanna í fjórtán ár, síðan liðin voru saman í Championship deildinni tímabilið 2011-12.
Bíómyndin Green Street Hooligans fjallaði meðal annars um ríginn á milli stuðningsmanna félaganna og slagsmálin þeirra á milli.

Fyrir Lundúnaslaginn hatramma, sem lauk með 2-2 jafntefli, komu hörðustu stuðningsmannahópar félaganna sér saman um að slást á ákveðnu svæði.

Stuðningsmenn Millwall voru tilbúnir en í stað þess að mæta stuðningsmannahópi West Ham kom lögreglan á svæðið. Hamrarnir hringdu í lögregluna og tilkynntu um áætlanir stuðningsmanna Millwall og náðist hluti af atvikinu upp á myndband, sem má sjá með að smella hér.

Championship: Skoraði og sá rautt eftir að hafa fórnað sér fyrir liðið
TENGT EFNI

Championship: Skoraði og sá rautt eftir að hafa fórnað sér fyrir liðið

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough17+1435
2Stoke City17+835
3Wolves17+1234
4Birmingham17+1532
5West Brom17+1032
6Southampton17+1628
7QPR17+728
8Swansea17+327
9Sheffield Utd17+626
10Portsmouth17+326
11Norwich17+925
12Blackburn17025
13West Ham17+1324
14Wrexham17-122
15Charlton Athletic17-720
16Bristol City17-1019
17Cardiff City17-518
18Millwall17-618
19Bolton17-1118
20Watford17-1515
21Lincoln City17-1615
22Preston NE17-1312
23Burnley17-1111
24Derby County17-2110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.