19.09.26 - 18:00
Andri Stefánsson
„Stoltur af leikmönnunum, teyminu mínu og öllum Víkingum“
Auglýsing

Sölvi eftir leik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi eftir leik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR tók á móti Víkingi í 2. umferð eftir skiptingu klukkan 14:00 í dag. Leikar enduðu með 2-1 útisigri Víkings sem tryggði þeim Íslandsmeistaratitilinn. Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, eftir leik.
Lestu um leikinn: KR 1 - 2 Víkingur R.
Sölvi var að vonum í skýjunum eftir að Víkingur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn.
„Það er frábært. Það er alltaf sætt að vinna titil og alltaf sætt þegar þú setur þér stór markmið, vinnur hart að þeim og nærð þeim síðan.“
Þetta er annar Íslandsmeistaratitill Sölva á aðeins tveimur árum hjá Víkingi.
„Mér líður virkilega vel. Ég er stoltur af leikmönnunum, stoltur af teyminu mínu, stoltur af öllum Víkingum og stuðningsmönnunum. Líka öllum þeim sem vinna hörðum höndum á bak við félagið. Ég er virkilega stoltur af því hvernig allt hefur verið tæklað. Það gerir starfið mitt auðveldara og gerir okkur kleift að vinna tvo titla á tveimur árum.“
Sölvi viðurkenndi að spennan hefði haft áhrif á liðið í upphafi leiks.
„Mér fannst vera smá hrollur í okkur fyrstu tuttugu mínúturnar, sennilega út af því hvað var undir. Síðan náðum við að hrista það af okkur og áttum mjög góða frammistöðu eftir það.“
„Þeir byrjuðu betur en þegar við náðum að hrista af okkur hrollinn fannst mér við vera sterkari aðilinn. Við fengum betri og fleiri færi en þeir og sérstaklega undir lokin, þegar þeir voru að reyna að jafna, áttum við að vera búnir að klára leikinn.“
Að lokum hrósaði Sölvi stuðningsmönnum Víkings.
„Það er skemmtilegast í heimi að spila fyrir framan þá. Stuðningurinn hefur verið geggjaður allt tímabilið. Þeir gefa okkur þetta extra til þess að klára leikina eða koma okkur í gegnum slæma kafla. Það er bara geggjað að gera þetta fyrir þá.“

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 24 | +50 | 59 |
| 2 | KR | 24 | +28 | 47 |
| 3 | Fram | 23 | +12 | 45 |
| 4 | Breiðablik | 23 | +4 | 33 |
| 5 | ÍA | 23 | -6 | 30 |
| 6 | Keflavík | 23 | -8 | 28 |