Fotbolti.net
19.09.26 - 17:10
Andri Stefánsson

„Vorum að berjast við fall fyrir ári síðan – sjáðu hvert við erum komnir“

Auglýsing
Aron Sigurðarson, fyrirliði KR.

Aron Sigurðarson, fyrirliði KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR tók á móti Víkingi í 2. umferð eftir skiptingu klukkan 14:00 í dag. Leikar enduðu með 2-1 útisigri Víkings sem tryggði þeim Íslandsmeistaratitilinn. Fótbolti.net ræddi við Aron Sigurðarson, fyrirliða KR, eftir leik.
Lestu um leikinn: KR 1 - 2 Víkingur R.
Aron var heilt yfir sáttur með frammistöðu KR. Hann var einnig ánægður með þróun liðsins og tímabilið í heild.

„Ef við horfum á fyrstu fimmtán umferðirnar, þar sem við vorum að keppa við Víking, þá er þetta bara langbesta lið landsins sem við vorum að keppa við,“ sagði Aron.

Hann segir miklar framfarir hafa orðið hjá KR á skömmum tíma.

„Við vorum að berjast við fall fyrir ári síðan og sjáðu bara hvert við erum komnir. Þetta er frábært.“

Aron benti jafnframt á að uppbyggingin hjá KR væri enn á tiltölulega fyrstu stigum í samanburði við Víking.

„Við horfum á þetta sem tveggja ára ferli. Við erum komnir hingað á tveimur árum en þetta Víkingslið hefur verið að byggjast upp í átta ár. Við erum komnir langt fram á við fótboltalega en síðan þurfum við þessa reynslu.“

„Þegar við horfum á tímabilið í heild sinni, miðað við hvar við vorum fyrir ári síðan, þá er þetta bara frábært tímabil.“

Viðtalið í heild sinni er lengra en þetta og hægt er að finna það í spilaranum hér fyrir ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.