Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 19. október 2019 08:50
Fótbolti.net
Freysi, Tyrkland og Sóli Hólm í útvarpsþættinum í dag
Maggi Bö og Sóli Hólm.
Maggi Bö og Sóli Hólm.
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Elvar Geir og Magnús Már verða í hljóðveri X977 í dag en það er hægt að lofa fjölbreyttum og skemmtilegum þætti.

Fótbolti.net er á X977 alla laugardaga frá 12-14.

Sóli Hólm, formaður Liverpool samfélagsins, mætir við enska hringborðið þar sem hitað verður upp fyrir leik Manchester United og Liverpool.

Freyr Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfari verður á línunni en rætt verður um stöðu mála hjá íslenska landsliðinu.

Þá verður rætt við Víði Reynisson öryggisstjóra KSÍ um landsleikinn gegn Tyrklandi í næsta mánuði en eins og flestir lesendur vita þá standa Tyrkir í hernaði um þessar mundir.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner