Á upplýsingafundi dagsins fékk Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir spurningu um það af hverju keppnisíþróttir væru bannaðar á Íslandi en leyfðar víðast annars staðar.
Íslandsmótið í fótbolta er í stöðvun í þriðja sinn á árinu vegna heimsfaraldursins en leikinn er fótbolti í nágrannalöndunum.
Sjá einnig:
KSÍ tilkynnir um framhald Íslandsmótsins í dag eða á morgun
Íslandsmótið í fótbolta er í stöðvun í þriðja sinn á árinu vegna heimsfaraldursins en leikinn er fótbolti í nágrannalöndunum.
Sjá einnig:
KSÍ tilkynnir um framhald Íslandsmótsins í dag eða á morgun
„Grunnurinn er sá að við erum að reyna að koma í veg fyrir hópamyndun og eins mikla snertingu og hægt er. Ég er ekki viss um að við séum eina landið í heiminum sem bannar það, væri fróðlegt að sjá það uppgjör," svaraði Þórólfur.
Víðir Reynisson bætti því við að víða eru íþróttir leyfðar þar sem atvinnumenn eru í 'búbblum'.
„Ég get bætt við þetta. Það er í nokkuð mörgum löndum sem íþróttastarf er bannað en atvinnumannadeildir og atvinnumannaíþróttir leyfðar," sagði Víðir á upplýsingafundi dagsins.
Athugasemdir