Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mán 19. nóvember 2018 20:52
Hafliði Breiðfjörð
Hamren: Albert var virkilega góður í fyrri hálfleik
Icelandair
Hamren á hliðarlínunni í kvöld.
Hamren á hliðarlínunni í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég fékk mörg svör. Bæði góð og ekki góð. Ég vildi virkilega vinna og ég hélt að við myndum vinna en þeir áttu tvö skot á mark og skoruðu úr báðum," sagði Erik Hamren við Fótbolta.net eftir 2-2 jafntefli gegn Katar í vináttuleik í Belgíu í kvöld.

Lestu um leikinn: Katar 2 -  2 Ísland

Aðspurður út í ljósa punkta í leik íslenska liðsins sagði Hamren: „Albert var virkilega góður í fyrri hálfleik en hann hvarf meira í seinni hálfleik."

„Við komum í veg fyrir að þeir myndu fá mjög góð færi. Freyr (Alexandersson) sagði mér að síðast þegar Ísland mætti þeim þá áttu þeir sextán skot eða eitthvað slíkt en þeir áttu ekki svo mörg færi í dag. Ég hefði viljað skapa fleiri færi en við fengum. Þegar við komumst í 2-1 þá hélt ég að við myndum vinna en það gekk ekki."


Ísland hefur ekki náð sigri síðan Hamren tók við í sumar.

„Við höfum bætt okkur mikið frá því í fyrsta leiknum okkar saman og það er gott. Við sáum í gær að það er ekki auðvelt að mæta Sviss á útivelli. Við erum ekki einir um að lenda í vandræðum þar,"

Kolbeinn Sigþórsson spilaði fyrsta klukkutímann og skoraði sitt fyrsta mark síðan árið 2016.

„Hann hefur lagt virkilega hart að sér. 60 mínútur er aþð mesta sem hann hefur spilað í langan tíma og það er líka langt síðan hann skoraði. Ég sá að hann var ánægður og ég var líka ánægður. Við vildum að hann myndi spila í mesta lagi 60 mínútur."

Undankeppni EM 2020 hefst í mars en dregið verður í riðla þann 2. desember næstkomandi. „Við sjáum hvað gerist. Við tökum á liðunum sem við mætum og ég hlakka til að sjá þetta. Þá getum við byrjað að plana þetta og undirbúa okkur fyrir næsta tímabil," sagði Hamren.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner