þri 19. nóvember 2019 19:00
Brynjar Ingi Erluson
Silva spilaði stóra rullu í því að Zlatan samdi við PSG
Zlatan Ibrahimovic og Thiago Silva voru keyptir frá AC Milan
Zlatan Ibrahimovic og Thiago Silva voru keyptir frá AC Milan
Mynd: Getty Images
Thiago Silva, fyrirliði Paris Saint-Germain í Frakklandi, rifjar upp söguna af því er hann og Zlatan Ibrahimovic voru keyptir til félagsins frá AC Milan.

Silva og Zlatan voru keyptir til PSG frá Milan í pakkadíl en félagið greiddi 65 milljónir evra fyrir leikmennina.

Brasilíumaðurinn átti stóran þátt í því að Ibrahimovic ákvað að fara til Frakklands.

„Ég man eftir því að Zlatan hringdi í mig og spurði mig hvort ég væri að fara til PSG og ég svaraði því játandi. Hann sagði við mig að ef ég færi ekki þá myndi hann ekki skrifa undir hjá félaginu," sagði Silva.

„Hann sagði líka að ef ég væri að ljúga þá myndi hann leita mig uppi!" sagði hann í lokin.

Silva leikur enn með PSG og er sjöundi leikjahæsti leikmaður félagsins frá upphafi á meðan Zlatan er annar markahæsti leikmaður félagsins frá upphafi með 156 mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner