mið 20. janúar 2021 19:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Pereira átti ekki roð í Antonio
Antonio er harður í horn að taka.
Antonio er harður í horn að taka.
Mynd: Getty Images
Í gær fór fram leikur West Ham og West Brom í deild þeirra bestu á Englandi.

Staðan var 1-0 í hálfleik en á 50. mínútu jöfnuðu gestirnir eftir flott skot frá Matheus Pereira. Markið kom eins og þruma úr heiðskíru lofti.

Heimamenn héldu hins vegar áfram að sækja og stuttu síðar skoraði Michail Antonio eftir sendingu frá Andriy Yarmolenko. Það reyndist sigurmarkið í leiknum.

Góður sigur hjá West Ham en það átti sér stað nokkuð skondið atvik í leiknum þegar markaskorarnir Antonio og Pereira börðust um boltann. Pereira ætlaði sér að reyna að ná boltanum af sóknarmanni West Ham en það gekk ekki alveg nægilega vel hjá honum.

Myndband af þessu atviki má sjá hér að neðan.

Michail Antonio shrugs off Matheus Pereira from r/soccer


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner