Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 20. febrúar 2020 22:15
Ívan Guðjón Baldursson
Espirito Santo: Viljum að Ruben geri þetta oftar
Mynd: Getty Images
Nuno Espirito Santo var ánægður eftir 4-0 sigur Wolves gegn Espanyol í Evrópudeildinni fyrr í kvöld.

Diogo Jota skoraði þrennu í leiknum og gerði Ruben Neves eitt með geggjuðu skoti utan vítateigs.

„Þetta var erfiður leikur en við skoruðum mjög góð mörk í síðari hálfleik. Fyrri hálfleikurinn var erfiður en við vorum betri eftir leikhlé," sagði Espirito Santo.

„Markið hans Ruben var magnað. Við viljum að hann geri þetta oftar, hann býr yfir ótrúlegum hæfileika."

Jota og Neves fóru einnig í viðtal að leikslokum og lýstu yfir ánægju sinni með sigurinn. Jota talaði um markaþurrðina sem hann hefur verið að upplifa í ensku úrvalsdeildinni.

„Þetta er í okkar höndum fyrir seinni leikinn. Mörkin komu bara náttúrulega í kvöld. Ég hef átt mjög erfitt með að skora í deildinni en stundum hafa litlar breytingar mikil áhrif. Ég er mjög ánægður," sagði Jota.

„Mark er mark. Þetta var mjög mikilvægur sigur fyrir okkur. Við vitum að útileikurinn verður mjög erfiður," sagði Neves, sem er vanur því að skora stórkostleg mörk með skotum utan teigs.
Athugasemdir
banner
banner
banner