Fotbolti.net
20.02.21 - 06:00
Fótbolti.net

Daníel Finns skrifar undir nýjan samning við Leikni

Daníel Finns skrifar undir nýjan samning við Leikni
Canon

Mynd: Haukur Gunnarsson

Miðjumaðurinn Daníel Finns Matthíasson hefur skrifað undir nýjan samning við Leikni út 2022.

Leiknismenn komustu upp úr Lengjudeildinni í fyrra og spila í Pepsi Max-deildinni í sumar.
„Danni Finns er tvítugur, er uppalinn Leiknismaður og skiljanlega í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum enda algjör gæðaleikmaður," segir á heimasíðu Leiknis.

Daníel lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk Leikni 2016 og í fyrra spilaði hann 15 leiki í Lengjudeildinni og skoraði þrjú mörk.

„Hann mun vafalítið láta ljós sitt skína í Pepsi Max-deildinni í sumar."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.