Ísland og Rúmenía eiga að mætast í umspili fyrir EM karla á Laugardalsvelli þann 4. júní.
Sama dag eiga Ísland og Lettland að mætast á Laugardalsvelli í undankeppni EM kvenna.
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, segir ekki ljóst hvernig þetta mál verði leyst.
Sama dag eiga Ísland og Lettland að mætast á Laugardalsvelli í undankeppni EM kvenna.
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, segir ekki ljóst hvernig þetta mál verði leyst.
„Við vorum bara að fá þessar upplýsingar og erum að fara yfir hvaða kostir eru í stöðunni," sagði Klara.
Ef Ísland vinnur Rúmeníu mætir liðið Ungverjalandi eða Búlgaríu ytra þann 9. júní en sama dag á Ísland að mæta Svíþjóð í toppslag í undankeppni EM kvenna.
Athugasemdir