06.10.26 - 22:43
Brynjar Ingi Erluson
Messi byrjar í kveðjuleiknum - Grét á leið á völlinn

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Lionel Messi mun spila sinn síðasta landsleik með Argentínu þegar þjóðin tekur á móti Benín klukkan 23:00 í kvöld.
Messi tilkynnti fyrir þetta landsleikjaverkefni að hann myndi spila sinn síðasta leik fyrir Argentínu.
Hann hefur verið mikilvægasti leikmaður þjóðarinnar undanfarna áratugi og leitt liðið í þrjá úrslitaleiki á HM. Einn þeirra vannst, árið 2022, og nú kveður hann landsliðið sem þjóðhetja.
Undirbúningurinn fyrir kveðjuleikinn hefur tekið á tilfinningarnar og Messi felldi tár í liðsrútunni á leið á Monumental-leikvanginn.
Það stefnir í tilfinningaþrungið kvöld en Messi er í byrjunarliðinu gegn Benín.
Lið Argentínu gegn Benín: Martínez; Tagliafico, Otamendi, Romero, Giay; Mac Allister, Fernández, De Paul; Martínez, Álvarez, Messi.

???? Leo Messi, in tears while arriving at the stadium on the bus. https://t.co/9FuCVi8GZL
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) October 6, 2026