Fotbolti.net
06.10.26 - 22:52
Brynjar Ingi Erluson

Ronaldinho sendir Messi hjartnæm skilaboð: Þú ert sá besti

Ronaldinho sendir Messi hjartnæm skilaboð: Þú ert sá besti
Canon

Mynd: EPA

Ronaldinho, einn af bestu leikmönnum allra tíma, hefur sent Lionel Messi hjartnæm skilaboð fyrir kveðjuleikinn með argentínska landsliðinu í kvöld.
Messi byrjar í kveðjuleiknum - Grét á leið á völlinn
TENGT EFNI

Messi byrjar í kveðjuleiknum - Grét á leið á völlinn

Messi klæðist argentínsku landsliðstreyjunni í síðasta sinn þegar Argentína tekur á móti Benín á Monumental-leikvanginum í Buenos Aires klukkan 23:00.

Kveðjur hafa borist úr öllum áttum, meðal annars frá Ronaldinho sem lék með honum hjá Barcelona. Þessir tveir töframenn báru mikla virðingu hvor fyrir öðrum á vellinum og hlýjan leynir sér ekki í kveðju Brasilíumannsins.

„Þvílíkur heiður og ánægja að hafa verið hluti af sögu þinni frá fyrsta degi, bróðir. Þú fékkst okkur til að brosa og njóta fótboltans svo mikið. Nafn þitt er skráð í sögu þjóðar þinnar og heimsins og aðeins við þekkjum gleðina sem fylgdi því að láta æskudrauminn rætast, spila fyrir þjóðina okkar og verða heimsmeistarar.“

„Þú gafst allt fyrir land og þjóð. Ég skil þig fullkomlega og veit að allt sem tengist fjölskyldunni fær okkur til að líta lífið öðrum augum. Njóttu lífsins, bróðir. Ég óska þér alls hins besta í dag og að eilífu. Þú ert sá besti!“
skrifaði Ronaldinho á Instagram.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.