Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 20. mars 2021 23:10
Victor Pálsson
Æfingaleikur: Víkingur Ó. vann Fjölni
Bessi skoraði.
Bessi skoraði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Ó. 1 - 0 Fjölnir
1-0 Bessi Jóhannsson('77)

Íslensk lið eru nú á fullu að undirbúa sig fyrir Íslandsmótið sem hefst loksins í næsta mánuði.

Lengjubikarinn hefur verið í fullu fjöri undanfarnar vikur en lið eru einnig að halda sér heitum með æfingaleikjum.

Einn æfingaleikur fór fram í gær þegar Víkingur Ólafsvík og Fjölnir áttust við.

Þessum leik lauk með 1-0 sigri Víkinga en það var Bessi Jóhannsson sem gerði eina markið seint í seinni hálfleik.

Fjölnir féll úr Pepsi-Max deildinni síðasta sumar og mun leika með Víkingum í Lengjudeildinni í ár.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner