Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 20. mars 2021 21:37
Victor Pálsson
Theodór Elmar og Kolbeinn spiluðu í sigrum
Mynd: Twitter
Theodór Elmar Bjarnason kom við sögu hjá Lamia í kvöld em spilaði við Panetolikos í efstu deild Grikklands.

Elmar byrjaði leikinn á varamannabekknum en kom inná í seinni hálfleik í leik sem Lamia vann sannfærandi, 3-0.

Lamia er sex stigum frá fallsæti eftir þennan leik en þetta var annar sigur liðsins í síðustu þremur leikjum.

Í Belgíu lék Kolbeinn Þórðarson með liði Lommel sem er að berjast fyrir því að komast upp í efstu deild þar í landi.

Kolbeinn lék 72 mínútur í 1-0 útisigri á Lierse sem lyfti Lommel upp í þriðja sæti deildarinnar.

Seraing er í öðru sæti sem gefur sæti í efstu deild en Lommel er fimm stigum frá því liði sem stendur.
Athugasemdir
banner
banner